Skógartoppur ‘Serotina’ er með gul, vínrauð og hvít blóm í endastæðum krans. Blómin ilma vel, sérstaklega í logni og á kvöldin. Skógartoppur blómstrar á árssprota sumarsins frá júlílokum og fram á haust. Blómin frjóvgast og myndast rauð ber sem standa þétt saman í höfði. Berin eru óæt.
Skógartoppur er mikil dugnaðar klifurplanta sem vindur greinum sínum utan um strengi og getur orðið margra metra hár utan á húsvegg, eða eins hár og strengirnir ná. Best er að klippa og snyrta skógartopp í apríl. Skógartoppur vex fram á haust og fær alltaf eitthvert haustkal, en það kemur ekki að sök, þar sem hann blómstrar á árssprota.
Eftir gróðursetningu við vegg þarf gæta að vökvunarþörf allt fyrsta sumarið. Skógartoppur vex best í hlýjunni utan á húsveggjum mót suðri, austri og vestri. Hann er ekki eins duglegur á frístandandi súlum og skjólveggjum.