Kínareynir ‘Bjartur’, Sorbus vilmorinii ‘Bjartur’ Ólafur Njálsson stakk í vasa sinn berjum af litlum runna með bleikum berjum í garði garðyrkjuskólans í Norður-Wales haustið 1989, sáði þeim strax um haustið og 5 plöntur urðu til vorið 1990. Ein af þeim
Fjallareynir
Fjallareynir, Sorbus commixta Alveg ótrúlega skemmtilegur og líflegur runni í móann! Blómstrar mikið, eldrauð ber og haustlitirnir alveg geggjað flottir! Harðgerður og auðveldur í ræktun, þarf ekki mikla næringu. Verður stór runni, um 2 – 4 metrar hár
Bogsýrena ‘Röðull’
Bogsýrena ‘Röðull’, Syringa reflexa ‘Röðull’. Bogsýrenuyrkið ‘Roði’ er að öllu leyti eins og venjulega bogsýrena, en með brúnblárauðum blöðum frá laufgun og fram í ágúst, en seinna verða þau dökkgræn. Blómklasinn er bogsveigður í endann, dökkrauður fram til þess að
Bogsýrena
Bogsýrena ‘Mjöll’, Syringa reflexa ‘Mjöll’. Bogsýrenuyrkið ‘Mjöll’ er að öllu leyti eins og venjulega bogsýrena, en með ljósgrænum blöðum og snjakahvítum blómklösum. Venjuleg bogsýrena er með bleikum til ljósbleikum blómum. ‘Mjöll’ myndar þéttgreinóttan, frekar breiðvaxin, um 1,5 – 2 m
Blárifs
Blárifs ‘Perla’, Ribes bracteosum ‘Perla’, úrvalsyrki úr Alaskaefniviði, sem safnað var í Alaska 1985. Fallegur runni sem fær sterka gula haustliti og er hlaðin hélubláum berjum á hverju hausti. Berin má nýta í sultu t.d. til að hafa með villibráð.
Bersarunni
Bersarunni, Viburnum edule í haustlit og með berjum. Bersarunni er með ljósbleik blóm, blómstrar í júní og verður um 1,5 metrar á hæð og breidd. Vorlitur blaða er einnig sérstakur, slær út í ólívugrænt og orans. Mjög harðgerður og auðveldur
Rauður broddhlynur
Rauður broddhlynur, Acer platanoides ‘Faassens Black’ og ‘Royal Red’ Rauður broddhlynur þarf gott skjól og hlýlegan stað til að þrífast þokkalega. Blöðin eru eins og nafnið gefur til kynna, rauð, dökkrauð og stundum nærri svört. Þau eru mjög þunn og
Broddhlynur
Broddhlynur, Acer platanoides. Broddhlynur er ennþá fágætur á Íslandi, enda á hann sér gamla sögu um vanþrif og mikið kal hjá þeim kvæmum sem var reynt að rækta hér áður fyrr. Í Nátthaga eru búnar til broddhlynsplöntur upp af fræi
Beyki
Beyki, Fagus sylvatica og Blóðbeyki, Fagus sylvatica ‘Atropunicea’ Beyki er til í ýmsum gömlum görðum á höfuðborgarsvæðinu og sennilega víðar. Það vex hægt og myndar mjög skemmtilegar, kræklóttar og ellilegar trjákrónur. Stofninn er bugðóttur, enda ekki von á öðru þegar
Alaskaosp
Alaskaösp, Populus trichocarpa Alaskaösp er óhemjuvinsælt tré, enda hraðvaxta með afbrigðum og maður fær örugglega að njóta þess sem stórs og myndarlegs trés, ekki bara barnabörnin! Rætur aspa eru gráðugar og fara víða, en þær skemma ekki skolplagnir né húsgrunna